7.3.2007 | 21:46
Auknar tekjur Hafnarfjarðarbæjar
Ef að stækkun yrði hjá álverinu í Straumsvík myndu tekjur beinar tekjur Hafnarfjarðarbæjar aukast úr 104 milljónum í tæpar 950 milljónir árlega. Þessar tekjur verða árlega og eru ekki háðar framleiðslumagni né afkomu fyrirtækisins. Þetta eru föst gjöld sem álverið borgað sem eru fasteignagjöld og hafnargjöld. Hérna er heldur ekki verið að tala um tekjur af útsvari starfsmanna álversins. Sumir hafa haldið því fram að þetta væru smáaurar og bærinn gæti vel lifað í velferð án þessara tekna. Þessar tekjur jafngild 280.000 á hverja fjögurra manna fjölskyldu árlega. Hver ætlar að halda því fram að það muni ekkert um það. Hafnarfjarðabær má þá vera ansi vel stæður ef þeim munar ekkert um þetta.
Hvað er hægt að gera við þessar tekjur:
- hægt er að gera leikskólana gjaldfrjálsa en það kostar um 300 milljónir árlega
- hægt er að hafa íþróttaiðkun barna gjaldfrjálsa en það kostar 100-200 milljónir árlega
- hægt er að hafa frítt í almenningsvagna en það kostar um 150 milljónir árlega
Þá eru ennþá eftir 300-400 milljónir bara af beinum tekjum frá álverinu á hverju ári.
Já, segið að þessar tekjur skipta ekki bæinn máli. Ég veit ekki betur en Hafnarfjarðarbær sé að berjast við ríkið að fá skattabreytinguna frá 2004 og fá með því 100 milljónir aukalega. Hvað er verið að eltast við þær ef bærinn getur aukið tekjurnar um 850 milljónir árlega með því að samþykkja stækkunina.
Ég bara spyr, hafa Hafnfirðingar efni á því að sleppa þessu tækifæri.
Eitt er víst að þetta býðst ekki aftur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2007 | 19:10
Neitað að lifa
Hvað gerist ef álverið í Straumsvík fær ekki að stækka eftir kosningar 31.mars
- álverið mun loka á næstu 5-7 árum
- 450 starfsmenn verða atvinnulausir
- birgjar og þjónustuaðilar álversins missa vinnu sína
- óvissa um velferð fjölskyldna þeirra sem missa vinnu sína
- Hafnarfjarðarbær missir af 950 milljónum í tekjur árlega
- sett verður slæmt fordæmi að hægt er að neita fyrirtækjum að stækka og dafna
- ákvörðunin verður ekki aftur tekin
- Hafnarfjörður missir af stærsta tækifæri sínu til að verða öflugur bær
- atvinnuleysi eykst
Hvernig í ósköpunum er hægt að segja við fyrirtæki sem gengur vel núna og aflar mikilla tekna til ýmissa aðila að þeir mega ekki lifa lengur. Höfum við þann rétt? Eigum við að stjórna líftímum fyrirtækja? Ég er hræddur um að það verði sett slæmt fordæmi.
Stækkum Alcan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.3.2007 | 18:54
Ósanngjarnt tap
Ekki er hægt að segja að lukkan hafi verið með Liverpool þegar þeir töpuðu fyrir ManUtd í gær. Liverpool var mikið betra í leiknum og áttu skilið að vinna. En svona er boltinn. Til að gleyma þessu sem fyrst vonast maður eftir því að Liverpool fari áfram þegar þeir mæta Barcelona í Meistaradeildinni á þriðjudag. Það sem var samt verst við þetta tap Liverpool var að ég var í veðmáli. Ég tapaði og nú þarf ég að drekka kaffið mitt næstu viku úr ManUtd könnu.
Ég vona að menn fyrirgefi mér það
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2007 | 01:30
Í lok dagsins
Það sem hefur gleymst í umræðunni er fólkið sem vinnur nú þegar hjá álverinu í Straumsvík. Hvernig snúa þessi mál að þeim. Jú, það er verið að kjósa um störf þeirra hvort sem þeim líkar betur eða verr. Við stöndum frammi fyrir því hvort störf okkar og lifibrauð síðustu 40 ára verði tryggð til frambúðar. Getum við réttlæt að stefna 450 starfmönnum álversins og fjölskyldum þeirra í hættu.
Held ekki
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2007 | 00:10
Í lok dagsins
Langur vinnudagur að baki en skemmtilegur og árangursríkur.
Athyglisverð grein á mbl um fund umhverfsiráðherra og ráðherra Umhverfsimála hjá Evrópusambandinu.
"Ennfremur lagði ráðherra áherslu á að mikilvægt væri að skoða sérstaklega sameiginleg samningsmarkmið og skuldbindingar fyrir atvinnugreinar óháð ríkjum, til þess að tryggja eftir megni að menn beiti bestu tækni alls staðar, þannig að fyrirtæki flyttu sig ekki milli ríkja til að losna undan strangari kröfum vegna losunar gróðurhúsalofttegunda. Stavros Dimas sagði að Evrópusambandið mundi styðja þessa nálgun í komandi samningum. "
Er þetta ekki nákvæmlega málið ef við virkjum ekki þessu vistvænu orku hjá okkur.
Í stað þess að færa fyrirtækin, færum við framleiðsluna í önnur lönd þar sem notuð eru olía og gas sem orkugjafa.
Með nýtingu þessara auðlinda okkar leggjum við okkar af mörkum í minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda með því að framleiða með vistvæni orku.
Vissuð þið:
- að flúor í gróðri kringum álverið í Straumsvík mælist jafnmikil núna í dag eins og áður en verksmiðjan hóf starfsemi.
- að svifryksmengun á Hvaleyrarholti hefur aldrei farið yfir heilsuverndarmörk í þau 40 ár sem álverið hefur starfað
- að ef álverið er stækkað, eykst framleiðslan um 150% en leyfileg mörk á losun flúors eingöngu um 25%
- að Isal er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem var vottað með umhverfisstaðalinn ISO 14001
Engin furða að forsvarsmenn Sólar í straumi segja að þeir hafi engar áhyggjur af mengunarmálum frá Isal. Þetta eru nefnilega staðreyndir.
Látum þetta duga í dag
Fleiri fróðleiksmolar á morgun
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2007 | 21:28
Reading - Man Utd
Hvað er að gerast ? 5 mínútur búnar og staðan orðin 3-0 fyrir ManUtd. Íslendingarnir tveir í vörn Reading líta út eins og byrjendur. Þetta er eins og þeir séu að spila fyrir íslenska landsliðið.
Þetta ýtir bara enn meira að leikurinn um helgina Liverpool og Manutd verði spennandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2007 | 21:17
Mönnun á störfum hjá Isal
Einhverjar áhyggjur eru uppi um mönnun í þau störf sem eru hjá Isal bæði og dag og eins þau sem munu bætast við með hugsanlegri stækkun Isal.
Í öll þau 40 ár sem Isal hefur starfað hafa Íslendingar verið þar við störf.
Í dag eru innan við 10 manns sem eru að erlendu bergi brotin og hafa þau öll búið hér í mörg ár og áratugi. Þau tala og skilja íslensku.
Núna er lítið atvinnuleysi en samt liggja tugir umsókna inni hjá Isal
Isal ræður 120 skólakrakka í vinnu á sumrin og komast færri að en vilja. Umsóknir undanfarina ára hefur verið á bilinu 600-900 í þessi sumarstörf.
Þetta segir margt.
Ég hef ekki þessar áhyggjur að flytja þurfi inn erlent vinnuafl.
Það er einnig ekkert sem segir það að að atvinnuleysi verði lítið árið 2010 þegar framleiðsla á að hefjast úr stækkunarhlutanum.
Já, það er gott að vinna hjá Isal
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.2.2007 | 21:03
Rangfærslur
Já, ég var að hlusta á Ísland í bítið frá því í morgun þegar Ingi mætti aftur Pétri. Enn og aftur fer Pétur fyrir Sól í straumi með rangfærslur. Samtökin Sól í straumi gefa það út að þeir vilji málefnalega umræðu. Það er hárrétt en hún verður einnig að vera byggð á staðreyndum en ekki rangfærslum.
Nokkur atriði frá því í morgun:
- stærð álversins þrefaldast eins og framleiðsluaukningin. Nei framleiðsluaukningin er 155% og stærð álversins stækkar um 85% sem er ekki einu sinni tvöföldun. Samanlögð stærð núverandi bygginga á álverssvæðinu er 140 þúsund fermetrar en stærð nýrra bygginga verður um 120 þúsund fermetrar. Þetta gerir 85% stækkun.
- enn og aftur segir hann að núverandi raforkusamningur Isal renni út 2024. Hvað er það sem menn skilja ekki í þessu. Það er margbúið að leiðrétta þetta. Hann rennur út 2014 með möguleika á 10 ára framlengingu.
Annað athyglisvert sem kom fram í máli Péturs var eftirfarandi setning "það er mjög misjafnt af hverju við erum á móti álverinu". Hingað til hafa samtökin haldið því fram að þeir væru á móti stækkuninni en ekki núverandi álveri???????'
Hvað þarf að gera til að leiðrétta þetta?
Jájá, svona var það
Sigurður Egill
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2007 | 00:53
Hagur Hafnarfjarðar og Sól í Straumi
Virkilega skemmtilegt viðtal við Inga Rúts hjá Hag Hafnarfjarðar og Pétri í Sól í Straumi á Rás 2 í dag. Mér fannst Ingi standa sig frábærlega, bæði málefnalegur og kom þessu skýrt frá sér. Það sem samt pirrar mann mest í umræðu Sólstraumagæjana eru rangfærslur og líkindatal. Pétur talar allt um að verksmiðjan er að þrefaldast. Er hún að þrefaldast? Nei, hún er að stækka um 150%. 460000/180000 er 2,5 sem er ekki þreföldun miðað við mínar kokkabækur. Okei, sumir voru betri en aðrir að námunda við næstu heilu tölu í gaggó. Í þessu viðtali hélt Pétur því einnig fram að Isal væri að fá bestu tekjurnar á hvert framleitt ál tonn innan Alcan. Hvar í ósköpunum fær hann þær upplýsingar. Jú, samkvæmt sérfræðingum þeirra. Hverjir eru þessir sérfræðingar? Nei, staðreyndin er sú að að Isal er með mjög háan framleiðslukostnað á hvert framleitt tonn innan Alcan samsteypunnar. Það eru rökin fyrir því að ekki sé hægt að reka núverandi verksmiðju um ókomna framtíð með hagnaði. Þegar núverandi orkusamningur Isal rennur út 2014 (ekki 2024) er ekki ólíklegt að orkan muni kosta Isal enn meira og því mun framleiðslukostnaður hækka enn meir á hvert framleitt tonn, þar sem samkeppni um orku hér á landi hefur farið mjög vaxandi. Það segir sig sjálft að á endanum eru ekki forsendur að reka 40 ára gamla verksmiðju með gamalli tækni. Þó að góður rekstur sé núna á verksmiðjunni er það ekkert sjálfgefið að það verði áfram. Hátt álverð núna hjálpar mikið til við reksturinn. Þetta er því ekki hræðsluáróður heldur staðreyndir. Staðreyndir um allar hliðar málsins er eitthvað sem Hafnfirðingar eiga rétt á að vita en ekki hvað við höldum eða rangfærslur, til að geta myndað sér skoðun um málið.
Hvað ætla Sólarmenn að segja við Hafnfirðinga ef atvinnuleysi eykst eftir nokkur ár og Isal þarf að loka vegna skorts á samkeppnisstöðu. Það er ekkert eðlilegt að segja við fyrirtæki. Nei, þið megið ekki þróast og dafna.
Ég bara spyr.
Nóg í bili
Sigurður Egill
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.2.2007 | 14:45
Glæsilegur sigur
Ekki er hægt að segja annað en sigur Liverpool á Barcelona hafi verið glæsilegur. Ekki nóg með það, því Liverpool var talsvert sterkari aðili í leiknum og því sigurinn sanngjarn. Þetta þarf kannski ekki að koma á óvart þar sem Barcelona hefur alls ekki verið að spila vel að undanförnu. Varnarleikurinn hjá þeim er ekki upp á marga fiska og sóknarleikurinn sem hefur verið þeirra aðall var ekki að virka í þessum leik. Þegar þessi snillingar frá Spáni er teknir föstu tökum hverfa þeir í svona leikjum.
Allavegana góður sigur og maður bíður spenntur eftir leiknum á Anfield. Það væri örugglega ekki leiðinlegt að vera á þeim leik.
Áfram Liverpool
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Myndskeið: Stórbrotið útsýni af flugbrautinni
- Maskína: Framsókn í fallbaráttu
- Myndir: Hraunið við bílaplan Bláa lónsins
- Gosstöðvarnar ekki aðgengilegar fyrir ferðamenn
- Vatnsleki hjá Brauð & co
- Má segja að þetta gos hafi þjófstartað
- Hraunið við bílastæði Bláa lónsins
- Stal munum úr starfsmannaaðstöðu